Leiðbeint á áfangastað
Veldu >
Kort
.
Kort sýna þér hvað er í nágrenninu, auðvelda þér að skipuleggja ferðina og leiðbeina
þér á áfangastað, ókeypis. Þú getur:
•
Leitaðu uppi borgir, götur og þjónustu.
•
Rataðu rétta leið með nákvæmri leiðsögn.
•
Samstilltu uppáhaldsstaðina þína og leiðirnar milli símans þíns og vefþjónustu
Nokia Maps.
•
Skoðaðu veðurspána og aðrar tiltækar upplýsingar um staðinn.
Ábending: Einnig er hægt að skipuleggja leið í tölvu með vefþjónustu Nokia-korta og
afrita hana í símann. Nánari upplýsingar er að finna á www.nokia.com/maps.
Kort
75
Ekki er víst að allar þjónustur séu tiltækar í öllum löndum og þær kunna að vera
eingöngu í boði á völdum tungumálum. Þjónustan kann að vera háð netkerfi.
Símafyrirtækið gefur nánari upplýsingar.
Við notkun þjónustu eða niðurhal efnis getur þurft að hlaða niður miklu gagnamagni
og greiða fyrir gagnaflutning.
Efni stafrænna korta kann stundum að vera ónákvæmt og ófullnægjandi. Aldrei skal
treysta eingöngu á efnið eða þjónustuna fyrir bráðnauðsynleg samskipti, t.d. í
bráðatilvikum.
Sumt efni er framleitt af þriðju aðilum en ekki Nokia. Efnið kann að vera ónákvæmt
og veltur á framboði.