Minniskorti komið fyrir
Aðeins skal nota samhæf minniskort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu
tæki. Ósamhæf minniskort gætu skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð
eru á kortinu.
Öll minniskort skal geyma þar sem börn ná ekki til.
Minniskorti komið fyrir
1 Til að taka bakhliðina af símanum ýtirðu á hana með fingrunum, rennir henni til
svo að hún opnist og tekur hana svo af.
10
Tækið tekið í notkun
2 Fjarlægðu rafhlöðuna ef hún er í símanum.
3 Til að losa minniskortsfestinguna skaltu renna henni í áttina sem örin vísar í. Lyftu
festingunni upp.
4 Settu minniskortið í festinguna. Gættu þess að snertiflötur kortsins snúi niður
þegar minnikortsfestingin er sett niður.
5 Settu minnikortsfestinguna niður.
6 Til að læsa minniskortsfestingunni rennirðu henni í upphafsstöðu sína..
Minniskort fjarlægt
Mikilvægt: Ekki fjarlægja minniskortið þegar verið er að nota það í forriti. Það kann
að skemma minniskortið og tækið og spilla gögnum sem vistuð eru á kortinu.
Tækið tekið í notkun
11
1 Slökktu á símanum.
2 Fjarlægðu bakhliðina og rafhlöðuna.
3 Lyftu minniskortsfestingunni upp og taktu minniskortið úr henni.