
SIM-korti komið fyrir
1 Slökktu á símanum.
2 Til að taka bakhliðina af símanum ýtirðu á hana með fingrunum og rennir henni
af.
3 Fjarlægðu rafhlöðuna ef hún er í símanum.
4 Til að losa SIM-kortsfestinguna skaltu renna henni í áttina sem örin vísar í. Lyftu
festingunni upp.
Tækið tekið í notkun
9

5 Settu SIM-kortið í festinguna. Gættu þess að snertiflötur kortsins snúi niður þegar
SIM-kortsfestingin er sett niður.
6 Settu SIM-kortsfestinguna niður.
7 Til að læsa SIM-kortsfestingunni rennirðu henni í upphafsstöðu sína.
Mikilvægt: Þetta tæki er aðeins ætlað til notkunar með venjulegu SIM-korti (sjá
mynd). Ef ósamhæf SIM-kort eru notuð gæti það skaðað kortið eða tækið og gæti
skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu. Fáðu upplýsingar hjá símafyrirtækinu um
notkun SIM-korta með mini-UICC straumloka.